Okei, hvað er eiginlega málið með gamalt fólk í umferðinni?
Nei ég bara spyr.
Ég lenti í því um daginn þegar ég var að keyra á hringtorgi í hamraborg, þar sem umferðin kemur upp af miklubrautinni með tvær akreinar, en hringtorgið er bara fyrir eina akrein, mjög spes en allavega, ég var að koma úr áttinni á móti, þannig ég átti réttinn, allt í góðu með það, ég lölla bara áfram í mínu fínasta skapi þegar það kemur einhver asnalegur kall brunandi upp miklubrautina og að hringtorginu ( þetta var á þeim tíma þar sem allir eru að fara heim úr vinnuni, hann hefur pottþétt verið að flýta sér heim) og ætlar svoleiðis bara inn um hurðina öðrum megin og út um hina hjá mér, á þessum fína fína jeppa sínum. Ég náttúrulega flautaði eins og asni á hann, og hann leit ekki einu sinni á mig, heldur bara lét mig snarhemla með hjartað í buxunum og flashbacks yfir stuttu ævi mína og allt það sem ég átti eftir að gera. Svo bara keyrði hann í burtu eins og ekkert hefði gerst. Þetta hefur t.d komið fyrir mig mjög oft, og iðulega eru það gamlir karlar á jeppum eða jepplingum sem eru annaðhvort svo þrjóskir að þeir halda að þeir geti bara samið umferðarreglurnar á staðnum, eða þá að þeir eru búnir að vera með bílpróf í hundrað ár og vita ekki hvað er rétt og hvað er rangt. Eða að þeim er einfaldlega bara skítsama. Ég hef nú líka lent í svona gömlum konum líka, einhverjum jillum með heila púðurdós og kíló af varalit í andlitinu. Og ef maður flautar, þá verða þær svo voðalega hissa!!! Þær geta náttúrulega ekki með neinu móti verið að gera eitthvað rangt, nei nei, ég er unglingurinn, og ég er bara lítil og vitlaus og kann ekkert að keyra, þær (og þeir) eru búnar að keyra mikið lengur en ég og hafa mikla og langa reynslu af akstri. Einmitt..
Heyrðu talandi um það að ég sé bara lítil og vitlaus og kunni ekki neitt. Ég fór í Bónus um daginn af því að ég er náttúrulega orðin fullorðin og farin að búa og þarf þar af leiðandi að kaupa í matinn sjálf. Allt í góðu með það og ég bara verslaði inn mitt, en það var samt alltaf jafn fyndið þegar ég var að teygja mig í mjólkina, ná í ostinn, taka brauð, jafnvel kaupa kjötbollur eða kjúklingabringur, alltaf var starað á mig alveg stórum augum eins og fólk væri að pæla "Guð er hún að kaupa í matinn sjálf, svona ung stelpan, af hverju ætli það sé?? ætli hún eigi í útistöðum við fjölskylduna sína......." Það er mjög fyndið, en líka mjög vandræðalegt.
Jæja. Nóg af þessu bulli í bili.
.
Litla verður fullorðin.
Wednesday, November 3, 2010
Wednesday, September 29, 2010
In the beginning, there was nothing at all but the moon and the sun.
And the moon wanted to come out during the day,
but there was something so much brighter that seemed to fill up all those hours.
The moon grew hungry, thinner and thinner, until she was just a slice of herself,
and her tips were as sharp as a knife.
By accident, because that is the way most things happen,
she poked a hole in the night and out spilled a million stars, like a fountain of tears.
Horrified, the moon tried to swallow them up.
And sometimes this worked, because she got fatter and rounder.
But mostly it didn't, because there were just so many.
The stars kept coming, until they made the sky so bright that the sun got jealous.
He invited the stars to his side of the world, where it was always bright.
What he didn't tell them, though, was that in the daytime, they'd never be seen.
So the stupid ones leaped from the sky to the ground,
and they froze under the weight of their own foolishness.
The moon did her best.
She carved each of these blocks of sorrow into a man or a woman.
She spent the rest of her time watching out so that her other stars wouldn't fall.
She spent the rest of her time holding on to whatever scraps she had left.

Sunday, May 23, 2010
-
Og alltaf kem ég hér inn reglulega og hugsa með mér, okei, núna blogga ég eitthvað massíft mikið. Svo byrja ég að blogga, komin með kannski nokkrar línur og hugsa svo, æ fokk itt, ég nenni ekkert að blogga. En nú skal sko verða af því.
Ég sit hérna uppí þægilegasta rúmi ever, mömmu rúmi, og horfi út um gluggan á þetta óeðlilega flotta veður, búin að sitja úti í sólbaði en gafst upp það var svo heitt, núna steikist ég bara hérna inni, ætli ég fari ekki í kalda sturtu á eftir.
En ég er semsagt ein heima í viku, fjölskyldan mín fór í sveitina á föstudaginn en ekki ég því ég þarf að vinna, biiiiiig surprice! Immi best(platpabbinn sko) kemur heim á morgun en flýgur til Egilsstaða kl.7 á þriðjudagsmorguninn, mamma kemur ekki heim fyrr en á sunnudaginn eftir nákvæmlega viku, þannig ég er bara hérna ein, og þar sem ég á ekki pening fyrir bensíni og hef ekki orku til að hjóla útum allt, þá sit ég bara heima og leik palla sem var einn í heiminum. Og jappla á avocado inná milli.
En jæja ætli maður verði ekki að venjast þessu svosem, þar sem maður flytur út í haust og þarf allt í einu að fullorðnast.
Jæja okei, ég verð nú ekki alein heima þangað til á sunnudaginn næsta, ég fer í sveitina seint á fimmtudagskvöldið, náði að sníkja mér far hjá eyjabúunum sem koma í land á fimmtudag, í staðinn fá þau kvöldmat :) góður díll sko. Ég einfaldlega get ekki beðið eftir því að komast í sveitina, núna er ég búin að vinna viku samfleytt og á 3 daga eftir (frí á þriðjudag samt) og ég er algjörlega orkulaus, það er lúmskt erfitt að vakna kl.5 á morgnanna. En ég kvarta ekki, ekki fær maður borgað fyrir að sofa út.
Á morgun átti að vera frídagur hjá mér, en ég þarf víst að mæta í vinnuna þar sem það eru að byrja 2 nýjar stelpur og einhver þarf að vera þarna til að kenna þeim á hlutina. Ég er búin að velta því fyrir mér hvernig ég eigi að vera, hvort ég eigi að vera svona pirrandi gellan eða hvað, það er margt um að velja hehehe. Vonandi á þetta samt eftir að ganga bara vel. Flehh
Svo er maður bara að skella sér til Danmerkur í lok júní. Jájá, þessar flöskusafnanir í vetur hafa sko borgað sig, ég og Petra erum búnar að safna slatta af pening. Vonandi getur Eyjafjallajökull samt hamið sig aðeins rétt á meðan, setta tappa í sig eða eitthvað. Við ætlum semsagt að vera hjá Elfu frænku minni, hún er svo yndisleg alveg búin að bjóðast til að skutla útum allt og gera allt fyrir okkur, enda var petra líka bara hissa á því hvað ég ætti góða frænku :) ...
En jæja okei ég held að ég hafi staðið við mitt, freeeeekar innihaldslaust blogg en ég meina, só vott... ;)

Wednesday, March 17, 2010
Hvur djöfullinn. Ég sem ætlaði að standa mig svo vel í að blogga.
Jæja okei ég geri það þá bara núna.
Díses tú píses hvað það er mikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast. Síðan í Nóvember ha..
Ég semsagt kláraði prófin mín bara með nokkuð góðu. Ég reyndar féll í Sálfræði, veit hreinlega ekki af hverju það var. En ég meina.
Svo fór ég í jólafrí, það var svo gott. Ég hélt jólin mín í sveitinni hjá Ömmu og afa, með famelizki. Það var endalaust ljúfa líf. Fór svo með múttu í bæinn milli jóla og nýárs, og bróza, og hitti vinina smá og svona, fór svo aftur í sveitina að halda uppá áramótin. Þau voru auðvitað rosa góð líka. Svo fórum við Arnar bró á áramótaball á hvammstanga, það var brjálað stuð. Við vorum ekki komin heim fyrr en um 6 leytið haha. Brjálað partý sko.
Svo byrjaði skólinn náttúrulega á fullu. Allt mega bandbrjálað að gera þar eins og venjulega. Er að ströggla við námið núna því ég er í svo mörgum einingum. Svo skráði ég mig í SJÁ102 sem er semsagt sjálfboðastarf hjá Rauða Krossinum og ég er að vinna í Rjóðrinu í tvo klukkutíma annan hvern þriðjudag. Að spila og leika við börn og unglinga, mér finnst það mjög fínt. Maður fær allt aðra sýn á lífið þegar maður kemur þarna inn. Áhyggjur og pirringur er af allt öðrum toga en maður fær að kynnast í daglegu lífi. Krakkarnir brosa alla daga, eru hress og kát langflest.
Heyrðu svo er mín bara flutt... Við famelían náðum að selja íbúðina loksins, á afmælisdaginn hennar mömmu samþykkti hún tilboð sem fékst í íbúðina, (27.janúar) en svo gátum við náttúrulega ekki flutt fyrr en um miðjan febrúar, þannig er ísland í dag bara. En við fluttum þó, í kringum vetrarfríið mitt í skólanum. Þrifum íbúðina í 3 daga, hún var ógeðsleg! ég hef aldrei! séð íbúð sem hefur verið jafn drullug og ógeðsleg og þessi var, það voru hundahár basically allstaðar! Á veggjunum líka!!, og gólfið var svo skítugt að það var hægt að leggjast og búa til drulluengla. Mér leist bara alls ekki nógu vel á hana fyrst þegar ég kom þangað. En þegar það var búið að þrífa og svoleiðis þá var það allt í lagi. Og þegar dótið var allt komið inn þá leit ég á hana öðruvísi, hún er nefnilega mjög kósí, stofan er risastór, þó svo að herbergin séu lítil. En ég á bara eftir að búa þarna næstu 5 mánuðina, kannski 6. Ég er nefnilega að fara að flytja að heiman, woopwoop. Ekki af því að ég er í þvílíku ósætti við famelíuna mína eða neitt þannig, þau eru líka að flytja úr bænum og einhverstaðar verð ég að eiga heima :) meiraðsegja ég og Addi bró búum saman, og Kristín Anna vinkona min :) .. fjör
Jæja svo er verið að skipuleggja margt og mikið. Ég er að fara til akureyrar 9.apríl með öllu yndislega MK fólkinu mínu! Söngvakeppnin er 10.apríl og við verðum þá helgi þar :) . Gistum á hóteli sem mamma reddaði fyrir okkur, erum 12 saman, á sama hóteli, algjör snilld. Það verður mikið djammað þar!! .. Svo erum við Petra að fara saman til Danmerkur í sumar, við erum á fullu að safna flöskum fyrir farmiðum þangað. Okkur langar líka að fara á Hróaskeldu en við verðum að sjá til með það, kreppa sko.
Svo er ég örugglega að fara með fjölskyldunni til Fáskrúðsfjarðar 22.apríl, þar sem Ingimar fósturpabbi minn býr, hlakka mega til að fara þangað, hef held ég aldrei komið. :)
Okei jih.. ég er búin að vera einum of dugleg, og ég sem á að vera að gera hlustunaræfingar í spænsku akkurat núna. Er að gera það svona on the side..
"I burn with the love that I lost when I lost you"

Friday, November 13, 2009
Nei! Bloggsíða. Vá skemmtilegt.
Í dag fór ég í afmælismat til Höddu, Hanna átti afmæli í dag(13.nóv.). Ég og Petra ákváðum að gefa saman gjafir(já, í fleirtölu). Við gáfum líka Höddu gjafir(jebb...fleirtala) af því að hún átti afmæli í október. Við fórum í gamla góða Tiger og Hanna fékk ; BLEIKT flísteppi, sleikjópoka og ísform, til að setja ís í og búa til pinna, mjög sniðugt hehehe.
Hadda fékk; Eggjaklukku, jólakodda með einhverri mynd af ísbirni, gestaþraut(þoli hana ekki, var allt kvöldið að reyna við þetta helvíti!!), ooog svona litla barnabók með myndum af ávöxtum og grænmeti, hún er sko mamman í hópnum, alltaf að elda, eins gott að hún viti heitin á þessu öllu saman.
Okkur Petru fannst þetta bráðskemmtilegt.
Heyrðu, um daginn var ég að labba upp útitröppurnar á blokkinni minni, svo sparkaði ég í eina tröppuna, datt UPP tröppurnar, féll á stigapallinn og rúllaði í hringjum alla leið að handriðinu og skallaði með hausinn í. Nei, það var ekki þægilegt. Það var í þokkabót grenjandiausandifjárans rigning úti og ég varð rennandi blaut, staulaðist á fætur og dröslaði mér upp, kom inn útlítandi eins og ég veit ekki hvað, leit á mömmu og sagði ahááááts, og fór svo inní herbergi. Maður var alveg búinn að gleyma því hvað þetta er vandræðalegt. Og mamma mín hló að mér. Og fyndið nokk, þá meiddi ég mig mest í puttanum.
Skólinn er alveg að verða búinn og ég er að fá flogakast af stressi! Það er svo mikið sem ég á eftir að gera og ganga frá, svo eru próf, ég má ekki falla í neinu. Ekki neinu I tell you! Er svo hrædd um að falla í spænsku, það er ekki eðlilegt, er að fara í próf á mánudaginn, sjáum hvernig það fer, annars verð ég bara að gera eins og í fyrra, skrifa mega ritgerð og eitthvað svona til að fá hærri einkunn.
Ætli maður staulist ekki í bólið, skutla múttu í vinnuna kl. hálf 8, það er náttúrulega ekki í lagi að láta hana vinna á laugardegi fram á kvöld þegar hún á risa fjölskyldu.

Wednesday, October 7, 2009
Jæja....
Nú sit ég hér í sakleysi mínu í stofu N22, mikið rosalega leiðist mér. Ég er ekki með bók, þannig ég get ekki gert verkefnið mitt. Og gúggúl er ekki alveg besti vinur minn akkurat núna, og ekki wikipedia.... Þannig ég ákvað að blogga... Um hvað? Ég hef bara ekki hugmynd.
Tjah jú ég fór á ball í gær. Tyllidagaball MK . Það var rosalega fínt, þó svo að ballið semég fór á um helgina( stóðréttarball í víðihlíð) Hafi verið svo miklu miiiklu skemmtilegra! Þá var þetta alveg fínt.
Já ég fór líka á ball um helgina. Það var ekkert smá gaman, ég tók Petru með mér og við skemmtum okkur svo vel! Það var snilld. Ekkert mikið að segja frá annars, bara að það var ógeðslega gaman. Petra var að fara á fyrsta sveitaballið sitt. Litli kjáninn hélt að það yrði kalt og kom með flís VETTLINGA með sér.... Greyið krakkinn veit ekki neitt hahahaha.
Jæja. Annars . Líf mitt er greinilega ekkert spennandi þessa dagana, bara same old same old... Ég hef aldrei frá neinu að segja. Gaman að því... -.-
Boj boj

Monday, September 28, 2009
Vá....
Djöfull er ég búin að vera dugleg í bloggheiminum í sumar .. NOT!
-
Allavegana , þá er ég ennþá á lífi :) . Komin á fullt í skólann, brjálað að gera. Er einmitt í spænskutíma núna, að semja spurningar, rosa stuð.
Svo var ég svo dugleg um helgina að ég gleymdi að það væri risa vocabulary próf í enskutíma í dag, holy ********!!!!!!! Heh...
-
Annars er voðalega fátt að frétta af mér, ekkert sem mann langar að tala um að minnsta kosti...
Ééééég skrifa aftur seinna, þegar ég hef um eitthvað merkilegt að segja :)

Subscribe to:
Posts (Atom)