Jæja....
Nú sit ég hér í sakleysi mínu í stofu N22, mikið rosalega leiðist mér. Ég er ekki með bók, þannig ég get ekki gert verkefnið mitt. Og gúggúl er ekki alveg besti vinur minn akkurat núna, og ekki wikipedia.... Þannig ég ákvað að blogga... Um hvað? Ég hef bara ekki hugmynd.
Tjah jú ég fór á ball í gær. Tyllidagaball MK . Það var rosalega fínt, þó svo að ballið semég fór á um helgina( stóðréttarball í víðihlíð) Hafi verið svo miklu miiiklu skemmtilegra! Þá var þetta alveg fínt.
Já ég fór líka á ball um helgina. Það var ekkert smá gaman, ég tók Petru með mér og við skemmtum okkur svo vel! Það var snilld. Ekkert mikið að segja frá annars, bara að það var ógeðslega gaman. Petra var að fara á fyrsta sveitaballið sitt. Litli kjáninn hélt að það yrði kalt og kom með flís VETTLINGA með sér.... Greyið krakkinn veit ekki neitt hahahaha.
Jæja. Annars . Líf mitt er greinilega ekkert spennandi þessa dagana, bara same old same old... Ég hef aldrei frá neinu að segja. Gaman að því... -.-
Boj boj