Saturday, May 23, 2009

Búin að vera að lesa mig til um Bonnie & Clyde .. þetta eru tvö seinustu erindin sem eru í ljóði sem Bonnie samdi sjálf.. frekar merkilegt hehe ... í dag (23.maí) eru X-mörg ár síðan þau voru skotin til bana, árið 1954 minnir mig , fyrir það hafði verið reynt að skjóta þau til bana en það tókst aldrei.

They don't think they're too smart or desperate,
They know that the law always wins;
They've been shot at before,
But they do not ignore
That death is the wages of sin.


Some day they'll go down together;
They'll bury them side by side;
To few it'll be grief--
To the law a relief--
But it's death for Bonnie and Clyde.

Thursday, May 21, 2009

Engar áhyggjur, ég er á lífi... Það er bara svo brjálað að gera í nýju vinnuni að ég hef engan tíma né orku til að vera í tölvunni, (nema núna hehehe)
Er byrjuð að vinna í Staðarskála, Hrútarfyrði, og það er awesome, reyndar alltaf geðveikt mikið að gera, og ég er oftast að vinna á mesta álagstímanum(frá ca.11-19/20) og allir vilja fá ís og pylsur(ekki pulsur). En það er samt gaman að vinna þarna, fólkið er svo skemmtilegt =) og ég elska að vera í sveitinni bara alltaf! Luuuuv it!

En, ég hef ekkert meira að segja , þannig ég ætla bara að fara í sturtu og fara að sofa, fer að vinna á morgun (4.dagurinn í röð) í átta tíma, og svo fæ ég frí í 3 daga , frá laugardegi til mánudags, =D og þá ætla ég í bæinn aðeins, í útskriftarveislu og svona skemmtilegt .... =D

Túrilúúúú...

e.s Allir að stoppa í staðarskála á ferðalögum =)

Wednesday, May 6, 2009

I'm a rocket man!

Ég fékk geðveika ullapeysu í vikunni.
Check this. Hún er hneppt, með hettu !! Hún er gjöööðveik .. Mamma meistari prjónaði hana fyrir mig. Ca. 25þúsund króna virði takk fyrir!
Ég vil ekki fara úr henni.


Ég náði líka í bílinn minn í dag. Loksins.
Svo á morgun fer ég með hann í skoðun og á dekkjaverkstæði og þá er hann ready to go! My my ... Im all grown up.
Fer í sveitina í næstu viku, ekki á næstu heldur þarnæstu helgi örugglega.


Ég er semsagt ennþá í prófum. Ég er búin með sálfræði 203 prófið ( þroskasálfræði. ) Það var á þriðjudaginn(ígær) og það gekk bara mjög vel held ég , það var skriflegt, og ég held að ég sé komin með bólgur í fingraliðamótin(ef svoleiðis er til) ég skrifaði svo mikið! Eins gott að ég hafi staðið mig maður!.
Svo er það stærðfræðiprófið. BOY! ég er stressuð.. Þið sem þekkið mig from adam vitið að ég hef aaaldrei eeeeeldreeei verið góð í stærðfræði, alltaf inn og út af sérkennslum í stæ.
Hvað var ég að hugsa að skrá mig í þennan áfanga?!? Oóóó


Einhver sem býðst til að taka til í ruslakompunni sem ég vill kalla herbergi? Það kom nefnilega óvart stjörnuhrap bara beint inn um svalarhurðina hjá mér ( hún er í lélegu ástandi! ) og bara púff! allt útum allt! Ekki gott, ætti að kæra einhvern þarna uppi. Nei nei ...
En semsagt, ef einhver býður sig fram þá er tekið á móti ykkur með gleðitárum!

Túrilúúú