Tuesday, March 31, 2009

Ég er ein af þessum týpum sem reyna að snúa öllu pínlegu yfir í grín.
En mikið óskaplega er það óþægilegt þegar maður er komin heim, aleinn inni í herbergi, að vita af þessu atviki, því það var svo rosalega pínlegt, maður einfaldlega getur ekki komist yfir það.
Og alltaf get ég sagt eitthvað sem er rangt, sem er ekki fyndið , og beinlínis bara hallærislegt.
Já, ég er ein af þessum týpum sem er ekki sama um hvað fólk finnst, og fólk segir, um mig. Mér finnst asnalegt að maður þurfi að vera svona og svona til að "fitta inn" . Ég sá það fyrir löngu síðan , að ég verð aldrei svona , og svona. Og alltaf hef ég velt því fyrir mér af hverju í fjandanum vinirnir í kringum mig vilja ennþá hanga með mér og umgangast mig, ég sem er svo púkó.
Og af hverju þessi strákur verður hrifnari og hrifnari af mér með hverjum deginum, ég velti því fram og til baka, og ég finn engin svör, finn bara hausverk.
Ég er alltaf að bíða eftir því að allir labbi í burtu, og ég standi bara ein eftir, ein og púkaleg.
En svo hugsa ég skýrt, af hverju held ég að vinir mínir séu þannig? Það eru ekki þeir sem eru vandamálið, heldur ég. Það er ég sem ýti þeim í burtu frá mér, af því að ég er einfaldlega of hrædd um að þau ýti mér í burtu, er þá þægilegra, hentugra að vera á undan?
Ég er bara svo heppin , að ég á vini sem eru þrjóskari en nautin. Og þau láta ekki ýta sér í burtu, og fyrir það er ég afspyrnu þakklát.


Ég tók hnakkamellupróf um daginn, og svaraði öllu neitandi, ég fer ekki í ljós, ég nota ekki farða daglega, ég slétti ekki á mér hárið daglega, and so on.
Ég fékk niðurstöður um að ég væri feit belja sem ætti að pæla aðeins í því að fara í bað einstaka sinnum og þvo á mér hárið... Ég veit að þetta er bara stupid "quiz" á facebook, en þetta særði samt innst inni, hver vill heyra að hann/hún sé feit belja sem fer aldrei í bað og er ógeðsleg/ur? Ég bara spyr. En ég meina, það var hvergi í þessum spurningum spurt hversu oft ég fer í bað... Ég fer nú bara í bað í óhófi ef það er hægt.
Hvenær hættir það að vera töff að vera ofmeikuð smápíka með púða í brjóstarhaldaranum? Ég þoli ekki þetta tímabil.


Já það er erfitt að vera stelpubjáni á milli unglings og fullorðins.

Monday, March 30, 2009

Er að gera Dagblað í skólanum á ensku, og ég átti að finna frétt á mbl.is eða visir.is eða what ever, og skrifa um hana á ensku ,
ég fór á mbl.is, og það eina , það EINA sem var þar , var bankatalið, krónan veikist, hlutabréfin lækka, gjaldþrot, forstjóri GM lætur af störfum.........

Ætlar þessu aldrei að linna? Þarf maður núna að færa allt þetta bankatal inn í ensku 403 í menntaskólum..


Djöfull er þetta þreytandi ...

Sunday, March 29, 2009

Helgin mín einkenndist af :

-Skemmtun
-Kulda
-Hita
-Hlátri
-Gráti
-Skömm
-Eftirsjá
-Glápi
-Spilun
-Spjalli
-Áti
-Svefni.

Og eflaust fleira ...
Seinni hluti bílprófs á næsta leiti, árshátíð, djamm í sumarbústaðarferð, tvær fermingar, og svo auðvitað langþráða páskafríið.

Nóg að gera.

Thursday, March 26, 2009

Já ég er aðeins að fikta.

En þú ?

Tuesday, March 24, 2009

Ísland! farsælda frón
og hagsælda, hrímhvíta móðir!
hvar er þín fornaldar frægð
frelsið og manndáðin best?

Maður smyr sig....

Monday, March 23, 2009

Hún varð sjálfráð'í gær ......

Jæja, þá er maður orðin einu ári eldri.
Varð sjálfráða hvorki meira né minna í gær... Hélt kökupartý (ehehe) fyrir famelíuna og nokkra vini. Heppnaðist bara mjög vel og litla íbúðin okkar fylltist af fallegu fólki :) ! Fullt af fólki sem ég hafði ekki hitt frekar lengi. Gamangaman ...
Daginn áður bökuðum við Agnes og Erla Dagmar litla sys hjálpaði, bökuðum súkkulaðiköku sem var svo góð! Ekkert smá.
Svo tók ég til um kvöldið, voða dugleg, en samkvæmt Laufey frænku þá er víst ekki skipulagt inn í herberginu mínu, þó það sé hreint og vel tekið til , ehehehe :) Sounds like me samt ..
Fékk fullt af fallegum gjöfum , og fulltfullt af afmæliskveðjum, hafði ekki undan við að svara öllum :) Takk takk allir. Rosa góður afmælisdagur :) !

Nú get ég semsagt, samkvæmt lögum, farið út í búð og keypt mér sígarettur og klám! Og fengið mér tattoo og svona sniðugt, hmmm.....
Er reyndar að fara að fá mér tattoo, en það er annað mál , hehe :)
Annars er voðalega lítið breytt hjá mér :) Alltaf sama litla Liljan. Það er alltaf best...
Ég fékk málningu,pensla og blöð til að mála á í gær, svona allt alveg alvöru, akrílmálningu og geðveika pensla, fór að mála í gær á trönurnar mínar sem ég náði niður í geymslu, ekkert smá gaman hjá mér.

Annars er ég ógeðslega þreytt í dag, ég var að vinna á laugardaginn, og það var beeeerjálað að gera, 500 manns á hótelinu hvorkimeiranéminna! Og það var allt kreisí! Diskar útum allt og allt í kássu. Svo á sunnudeginum átti líka að vera 500 manns , ef ekki fleiri, og ég þurfti að skera örugglega svona 30 pakkningar af osti, og setja á bakka. Hehe, það var frekar kreisí allt saman, en það var samt ekki leiðinlegt, starfsfólkið er allt öðruvísi heldur en það var í sumar, minna svona biturt, kann enga skýringu á því... En það var allt voðalega fyndið sem ég gerði, ef ég kom inn móð og másandi og sagði " vá úff það er brjálað að gera frammi" þá fóru þær að hlægja , þær sem eru að vinna með mér, fannst ég voðalega sniðug, svo var ég að bera þunga bakka inn í kæliskáp , og það var hrikalega þungt, þeim fannst það líka voða sniðugt hehe :) Þær eru ágætar þessar konur sem eru að vinna þarna...

Það var náttúrulega rætt um Kanada í afmælinu í gær, mamma var svona að segja öllum frá að við værum að spá í að flytja þangað. Það var bara vel tekið í það almennt held ég. Ég held að amman mín sé ekkert voðalega spennt fyrir þessu því þá verðum við svo langt í burtu, og ég lýg ekki en ég á eftir að sakna ömmu og afa og sveitarinnar óeðlilega mikið!! Og auðvitað allt hérna á Íslandi, fjölskyldu og vinir.. En ef hyskið mitt fer, þá fer ég með af því að ég vil styðja þau :) og svo er líka bara gaman að prófa eitthvað nýtt, og ef það virkar ekki þá er bara að kaupa flugmiða til íslands aftur... Ég held samt að þetta verði bara fínt, kannski frekar kalt á veturnar, en það er aukaatriði hehe .... Ég er alltaf að spurja Erlu Dagmar litlu systir mína hvort við eigum að flytja til Canada, hún er náttúrulega bara næstum 3 ára, þannig hún veit náttúrulega ekkert hvað það er, en það er rosa krúttlegt að spurja hana og heyra hana segja alltaf "já við flytja þangað" hehe :)

Ég er annars að spá í að læra eitthvað í þessari eyðu minni ... Ég alveg að geyspa úr mér góminn hérna megin ... úff

Þartilnæstfólksemnenniraðlesaþetta...

Wednesday, March 18, 2009

Ljónið á veginum... bráðum

Nei ég kann ekkert á þessa blogspot síðu, takk fyrir að spurja ...
Hjálp óskast..

Jæja, ég er loksins búin að ná þessum fjandansandskotansogalltþað bóklega hluta af bílprófinu ! YESS,.. Third time really IS the charm. Féll 2x og tók það aftur í gær , eftir 6 mánuði(semsagt tók hin í október eða nóvember). Ég var drulluskíthelvíti stressuð fyrir þetta próf, kunni öll prófin á netinu utanað! Sat sveitt við það ( í bókstaflegri merkingu!!) og fór yfir það svo oft að ég kunni það sem ég krossaði við utanað(jebb) og meðan hún var að fara yfir prófið var hægt að heyra í mér hjartsláttinn, án gríms!(já grímur var ekki þarna, að mér vitandi) Sjitt hvað ég var stressuð. Svo benti hún mér bara á voða kurteisislega að ég hafi náð, mér lá við að knúsa hana í klessu! En þar sem þetta virtist vera frekar bitur kelling þá ákvað ég að sleppa því hehehe...
Semsagt núna þarf ég bara að fara í nokkra ökutíma í viðbót, láta ökukennarann minn panta próf, fara í það, og vonandi ná því og púff! Ég er komin á göturnar!

Annars er voða lítið að frétta , eins og alltaf, ég hef voðalega lítið lært þessa dagana í skólanum því ég hef verið að einbeita mér svo mikið að því að læra fyrir þetta bílpróf, sem borgaði sig svo sannarlega!
Þannig ég verð að fara að standa mig!


Já ég fékk áminningu í skólanum um daginn, á mánudaginn , sent með pósti. Þar stóð, að ég væri komin með 75% mætingu, nú þar sem reglur skólans eru þannig að þú færð áminningu þegar þú ert komin niður fyrir 90% í mætingu allt í lagi með það, svo færðu ekki aðra áminningu, en ef þú ferð fyrir neðan 80% er bara litið svo á að þú sérst hættur í skólanum, já já , mamma kom með þetta bréf BRJÁLUÐ(sorry mamma hehe) en hun var snarhoppandisnarbrjáluð (bara skemmtilegt orð hehe) og vildi fá útskýringu, og ég gat ekkert gefið henni hana, þar sem ég er með 89% í mætingu en ekki 75%( virðist kannski ekki vera mikill munur en það er það samt!) Og það sem var mest spes, var að bréfið sem mamma fékk, hafði ekki verið sent í pósti, og það var handskrifað framan á bréfið, voðalega fíngert og allt, og sett í póstkassann okkar, er það eitthvað nýtt eða? Ég er ekki alveg að skilja þetta, ég sendi kennaranum mínum(sem er afleysingakennari fyrir alvöru kennarann minn því hún er í fæðingarorlofi) e-mail, og sagði að ég skildi þetta ekki alveg, og mamma vildi fá útskýringu á þessu öllu saman, og þá bara fór hún að rausa eitthvað um raunmætingu og blehblehbleh(getur heldur ekki staðist af því að raunmætingin mín er hærri en 75% ég tékkaði á því) Mamma sendi henni líka e-mail, og hún sendi bara afrit af sama maili og ég fékk ... Þar fór það...

Um helgina er vinnuhelgi, again, er reyndar bara að vinna á laugardag, því ég er svo bissí þessa helgi, en ég þori aldrei að segja nei hehe, þannig ég sagðist bara alveg geta unnið á laugardag til að segja ekki alveg nei . eeeeh.. þar fyrir utan vantar mig svo mikið pening! Hef ekki átt almennilegan pening til að redda mér í lífinu í marga mánuði og það er svo vont að biðja mömmu um pening því þeir eru ekkert voðalega margir sko ( peningarnir hah ).
Svo á sunnudaginn ætla ég að verða gömul. 18 ára, jeesús... Bauð vinum og ættingjum í kaffi og kökur á sunnudeginum :) Fínt að sjá andlitin á þessu fólki, maður hittir þau svo sjaldan!


Svo er það bara Canada segiru, já mamma, ég er farin að blogga um það. Mamma sagði mér að við ætluðum kannski (mjög líklega!) að flytja til canada á þessu ári, og sagði mér að halda því leyndu, en ég get ekki svoleiðis, þetta er of stórt til að segja ekki frá því haha, eins og þegar hún var ólétt af Erlu Dagmar litlu systir, ég náði að halda því í viku inni svo bara sprakk ég eins og illabúintilblaðra hehe .. Hvíslaði því að vinkonu minni og hún varð svo spennt að hún hrópaði það yfir allan bekkinn í skólanum, vandræðalegt eða eitthvað.. hehe :)
Ég er annars bara spennt að flytja þangað sko , ég veit eiginlega ekki af hverju. Mamma sagði mér í dag að ef við myndum flytja þangað og ef ég vildi keyra bíl þar, þá þyrfti ég að taka prófið aftur, á Canadískum forsendum ahahahah ég hló bara! no way að ég fari í gegnum þetta allt aftur! ojbara ...

Hví er ég alltaf svona þreytt þessa dagana? Ég er alltaf þreytt og svöng, ég borða reyndar voðalega lítið, ég veit ekki alveg af hverju. Og svo er ég alltaf þreytt, óvenjuþreytt, og svona orkulítil, samt er ég ekkert eitthvað ekki að hreyfa mig og allt það, búin að vera frekar mikið dugleg að fara í sund og synda og þannig. Hmmmm....
Svo dreymir mig alltaf svo asnalega, mig dreymdi t.d í nótt að ég hefði verið heima hjá spænskukennaranum mínum sem var að kenna mér í 103 .. Og svo kom mamma og þær fóru á svona fund, og ég sofnaði á meðan á húddinu á bílnum hennar með beyglu fyrir andlitið, what the .... Held að ég hafi líka dreymt bangsímon at some point.. HA HA
Það sem mig dreymir stundum ... Ótrúlegt, í bókstaflegri ..

Akureyrarferðin segiru . Jááá það er búið að fresta henni held ég :O !!! Semsagt söngvakeppnin. Átti að vera held ég ekki núna um helgina, ekki næstu heldur þarnæstu(semsagt þararnæstu) fyrstu helgina í apríl(vá það er miklu auðveldara haha). En einhver var að segja að henni verði kannski frestað ... o.O ! Slæmt! Það var sjúklega gaman í fyrra!
Annars fer ég bara til Hólmavíkurinnar góðu með Agnes eða eitthvað :) !

Jæja okei ég er farin að sturta mig og svo í svefn, þreyttþreytt!

Já blessfressekkertstress ( er það ekki þannig ? )

Thursday, March 12, 2009

Útskýra útskýra útskýra!!

Á kvöldin reynir nóttin að taka völdin. Hálfmáni hengir sig á himnum og gerir myrkrinu erfitt fyrir.



Já mikið er ég fegin að það er alveg að fara að vora-bráðum.

Ég er svo mikið anti-vetrartímamanneskja. Allir segja að það sé svo kósí á veturnar að vera inni undir hlýrri sæng og allt það þegar það er kalt úti, jújú það er voða kósí , en ég vil frekar vera úti fram á nótt á peysunni í blankalogni og blíðu, helst í sveitinni ljúfu.

Það er alltaf eitthvað með mig þegar það kemur vetur, jólin eru öðruvísi en þegar ég var lítil, það er ekki eins gaman að vera til á veturnar lengur. Mann langar helst bara til að skríða undir sæng, sofna og vakna svo bara þegar klukkan slær vor.

Það myndi ég allavegana vilja.



Ég er alveg að skíta á mig í skólanum. Ég reyni og reyni og reyni að skilja þessa blessuðu spænsku, en það virðist ekkert hafa upp á sig, ég skil ekki boffs. Rétt þegar maður er að byrja að skilja einhverja beyingu á orðum, þá bara já okei , núna ætlum við að læra nýja beyingu! , ég er ekki svona fljót að læra, svo kem ég heim á daginn og er búin að gleyma öllu saman. Allir segja við mig já já þetta er bara æfing þetta kemur með tímanum, well , ég er búin að æfa mig og æfa mig, og tíminn er kominn og farinn! Og þetta síast ekki enn inn í heilan á mér. Svo er kennarinn minn spænskur og kann því ekki fullkomlega íslensku, og það er voðalega erfitt að skilja stundum hvað hún á við , og þó maður spurji endalaust þá virðist maður samt ekki skilja það. Eða kannski er það bara ég. Hún var t.d að þýða texta í dag, massívan texta sem fjallaði um pelíkanafugl, allt í lagi með það ég náði alveg svona heildarsögunni, en það voru þessi litu orð, sem hún var að útskýra sem ég skildi bara ekki neitt sem hún var að reyna að útskýra.



Og stærðfræði!! hver ákvað að kenna stærðfræði bara svona hiklaust. Jú jú okei ég veit að þetta er voðalega mikið eins og gott grænmeti fyrir heilann, blehbleh... En kennarinn var að reyna að útskýra í dag núllstöðvar og rætur eða eitthvað svoleiðis, og svo kom hún með þetta massíva dæmi og var að reyna að útskýra. Ég skil ekki af hverju x í öðru -1 getur bara allt í einu breyst í T ... "Já þið bara breytið því í T á meðan þið eruð að reikna dæmið" , Svo komu náttúrulega þvílíkir útreikningar, finna núllstöðvar sem er gert með því að fara í menu í reiknivélinni og í einhvert voðalegt forrit sem reiknar út núllstöðvatölurnar fyrir þig. Þetta er eins og að tala útdautt tungumál við mig. Ég skil bara ekki neitt!!!!



Nú hinsvegar sálfræði , þar erum við sko að tjatta saman, eða eitthvað .. Það er eitthvað sem mig virkilega langar að læra, þegar hún er að tala um börn og hvernig þau hugsa og framkvæma langar mig bara til að drekka í mig allan þann fróðleik sem til er um þroskasálfræði. Það er gaman ! :)



Nóg um skólann ...


Þessi vika er búin að vera voðavoða skrýtin, ég er búin að vera eitthvað svo túrbó dugleg. Ég fór í ræktina, og sund 3 daga í röð, synti eins og ég kynni ekkert annað.
Það var alveg þvílíkt, enda fékk ég að sofa út í dag(laugardag) og ég svaf sko til 12 takk fyrir! :) Dauðþreytt...


Gaman að segja frá því að ég var að fá útúr Sálfræði verkefninu mínu um Þroska barna. Og ég fékk 9.0 þakka þér kærlega kæri lesandi! Ég var svo glöð að ég hélt að ég myndi bara öskra í tíma. Það var líka bara gaman að gera þetta verkefni, gerði tilraunir með Auðbjörg Erlu og Dagmar litlu frænkum minum, bara gaman :) !

En annars, nú tekur við ritgerð í Íslandsklukkunni góðu, um samband Snæfríðar Íslandssólar og Magnúsar, best að fara að drulla sér í það!

Jábæj...

Monday, March 9, 2009

Vinnuhelgi

Skrifað sunnudaginn 8.mars.2009

Djöfull ætla ég aldrei að búa ein ! Nú er ég ein heima alla helgina, þar sem ég fékk vinnu um helgina á hótel Cabin þar sem ég var að vinna í sumar, og þá ákvað allt heila stóðið mitt að fara í sveitina og skilja mig eina eftir í þessari blokkaríbúð okkar.

Það er ömurlegt að fara að sofa vitandi að þú ert aleinn og frammi er dimmt og drúngalegt, og vakna svo alein , ennþá dimmt úti , fara í vinnuna sem þér finnst ekkert skemmtileg, koma heim drulludauðþreytt og enginn heima, allt slökkt, fá þér ristað brauð í kvöldmat og vatn. Hanga í tölvunni ein inni í stofu , og fara svo að sofa, alein.. Er búin að vera rosa dugleg samt, þvílíkt housewife-fílingur .. Búin að þvo þvott, vaska upp, sópa gólfin, setja í uppþvottavélina, skipta um á rúminu(reyndar bara mínu) og blehbleh...Eina sem vantar er að ég baki kökur, þá verð ég eins mikið housewife og Hulda frænka hehehe. Vil ekki fara að sofa, af því að ef ég geri það þá verð ég bara ómöguleg þegar ég vakna, er samt dauðþreytt, get ekki horft á sjónvarpið án þess að verða rangeygð. Það eina sem ég hef horft á alla helgina er Rachel Ray þema, bæði í gær(laugardag) og dag... að horfa á allan þennan mat, jih, svo fer maður inn í eldhús og ætlar að gera eitthvað sjúúhúklega gott, trúir því sko alveg að maður geti þetta, búinn að horfa á Rachel Ray gera þetta, í 40 mínútur,... nei nei , það er ekkert til, ég fæ mér bara ristað brauð og seríós... namm

Mig langar að grenja...

Þegar ég flyt að heiman, ef ég verð einsömul, þá fæ ég mér hund, kött, hamstur, eitthvað! Helst hund :) En jæja,

Úr því að ég sé að kvarta... Djöfull hata ég fólk sem tekur bara alveeg sinn tíma.. Sem kemur, þegar það er búið að loka morgunverðarsalnum, opnar bara , og heimtar brauð, fær sér sæti og bara lalala... það er búið að loka for god sakes!! já ég semsagt er að vinna við morgunverðarhlaðborðið á Cabin heh ... :) Alltaf þegar ég fer að vinna þarna, þá er ég svo þakklát fyrir að vera í skóla, hætti ég alveg að kvarta yfir því að þurfa að læra heima, og mæta í skólann og allt það ... úff

Það er annars ekki mikið að frétta, er bara að bíða í rólegheitunum eftir sumrinu, það kemur meir og meir með hverjum deginum. Sem betur fer. Þá fæ ég að vera á uppáhalds staðnum mínum alla daga, allan daginn , Kjörseyri,Hrútafyrði.. Hlakka svo til .. En jæja, ég er alveg uppgefin, hef ekki meiri orku í mér í bili ..Ætla að halda áfram að horfa rangeygð á Rachel Ray ...

Wednesday, March 4, 2009

Testing 1,2,3...


















Myndir sem ég hef tekið, á mismunandi tímum, mismunandi stöðum...

Monday, March 2, 2009

.

Já hæ.

Ég er að lesa Íslandsklukkuna, þar er verið að segja að Snæfríður sé að halda framhjá Magnúsi með Arnasi. Og Sigurður dómkirkjuprestur er að reyna að koma henni í skilning um að þetta sé alveg eins og þegar Eva freistaðist til að éta af trénu eða eitthvað þannig blehbleh. Ég fór að snökkhugsa svona, ég trúi enganvegin á þetta Evu og Adam kjaftæði... Ég held bara að fólk sé að búa til sögu til að kenna einhverjum um hvernig farið er fyrir heiminum. Ekki sniðugt. Afi minn sagði við mig að hann trúði því að fólkið hafi skapað guð til að hafa eitthvða til að trúa á, og mér finnst það mjög sannfærandi. Og ég vil trúa því líka :) .

En nóg um Guðfræði.
Ég fór í spænsku sagnapróf í dag, og gekk bara svona líka furðu vel! Er farin að skilja spænsku betur og læra þetta betur, á þrjóskunni, það er sko ekki gæsin sem er að gera þetta að verkum, heldur þrjóskan ;) ... Og smá nenn....

Um helgina passaði ég litla grísinn minn hana systir mina :) Við höfðum það kósí fyrir framan TV í náttfötum um kvöldið , borðuðum snakk og fengum ís, hún var svo glöð litla greyið mitt :) . Vorum að horfa á Meet the Robinsons , og jafnvel þó svo að Erla Dagmar skilji ekki bofs í ensku , þá finnst henni þessi mynd furðu skemmtileg. Og svo var hún orðin svo þreytt, af því að fyrr um daginn höfðum við farið í sund famelían nema Arnar, og hún hoppaði og skoppaði í sundinu, og var ekkert búin að sofa yfir daginn. Þannig hún skreið í fangið á mér og sofnaði ofaná brjóstkassanum mínum :) , litla krúttið !! ekki oft sem maður fær að kúra með hana svona, ekki mikil kúrimanneskja :) .

Annars er ég búin að gera mest lítið síðan í vestmannaeyjum. Á fimmtudaginn átti Svenni, kærasti vinkonu minnar afmæli, og við fögnuðum því um kvöldið með því að fara á Snóker og Pool barinn, ég kann ekki baun í Pool en náði samt að hrinda eins og tveimur kúlum í rétta holu!
Var samt ekki lengi þar, ég fékk hausverk og varð aumingji og fór heim :) ...
Og sunnudagurinn var tekinn rólegur, kannski einum of rólegur þar sem ég lærði valla neitt, nema eftir kl.12 á miðnætti, en ... það skilaði samt árangri , gekk vel í prófinu, miðað við allavegana...

Hvað er málið með Íslenska nemendur. Ég er búin að heyra af tvemur eða þremur tilvikum þar sem ráðist var á strák í skólanum, núna nýlega í Grunnskóla Sandgerðis! Kommon! ... Hvaðan fær þetta fólk þá hugmynd að ráðast bara á annað fólk, getur fólk ekki bara farið heim og fengið sér matarkex og mjólk!?! pfft...


Ég ætla að halda áfram að lesa í Íslandsklukkunni, glósur, þar sem ég er að fara í próf eftir ca.2 tíma... vei


Já bæ..