Á kvöldin reynir nóttin að taka völdin. Hálfmáni hengir sig á himnum og gerir myrkrinu erfitt fyrir.
Já mikið er ég fegin að það er alveg að fara að vora-bráðum.
Ég er svo mikið anti-vetrartímamanneskja. Allir segja að það sé svo kósí á veturnar að vera inni undir hlýrri sæng og allt það þegar það er kalt úti, jújú það er voða kósí , en ég vil frekar vera úti fram á nótt á peysunni í blankalogni og blíðu, helst í sveitinni ljúfu.
Það er alltaf eitthvað með mig þegar það kemur vetur, jólin eru öðruvísi en þegar ég var lítil, það er ekki eins gaman að vera til á veturnar lengur. Mann langar helst bara til að skríða undir sæng, sofna og vakna svo bara þegar klukkan slær vor.
Það myndi ég allavegana vilja.
Ég er alveg að skíta á mig í skólanum. Ég reyni og reyni og reyni að skilja þessa blessuðu spænsku, en það virðist ekkert hafa upp á sig, ég skil ekki boffs. Rétt þegar maður er að byrja að skilja einhverja beyingu á orðum, þá bara já okei , núna ætlum við að læra nýja beyingu! , ég er ekki svona fljót að læra, svo kem ég heim á daginn og er búin að gleyma öllu saman. Allir segja við mig já já þetta er bara æfing þetta kemur með tímanum, well , ég er búin að æfa mig og æfa mig, og tíminn er kominn og farinn! Og þetta síast ekki enn inn í heilan á mér. Svo er kennarinn minn spænskur og kann því ekki fullkomlega íslensku, og það er voðalega erfitt að skilja stundum hvað hún á við , og þó maður spurji endalaust þá virðist maður samt ekki skilja það. Eða kannski er það bara ég. Hún var t.d að þýða texta í dag, massívan texta sem fjallaði um pelíkanafugl, allt í lagi með það ég náði alveg svona heildarsögunni, en það voru þessi litu orð, sem hún var að útskýra sem ég skildi bara ekki neitt sem hún var að reyna að útskýra.
Og stærðfræði!! hver ákvað að kenna stærðfræði bara svona hiklaust. Jú jú okei ég veit að þetta er voðalega mikið eins og gott grænmeti fyrir heilann, blehbleh... En kennarinn var að reyna að útskýra í dag núllstöðvar og rætur eða eitthvað svoleiðis, og svo kom hún með þetta massíva dæmi og var að reyna að útskýra. Ég skil ekki af hverju x í öðru -1 getur bara allt í einu breyst í T ... "Já þið bara breytið því í T á meðan þið eruð að reikna dæmið" , Svo komu náttúrulega þvílíkir útreikningar, finna núllstöðvar sem er gert með því að fara í menu í reiknivélinni og í einhvert voðalegt forrit sem reiknar út núllstöðvatölurnar fyrir þig. Þetta er eins og að tala útdautt tungumál við mig. Ég skil bara ekki neitt!!!!
Nú hinsvegar sálfræði , þar erum við sko að tjatta saman, eða eitthvað .. Það er eitthvað sem mig virkilega langar að læra, þegar hún er að tala um börn og hvernig þau hugsa og framkvæma langar mig bara til að drekka í mig allan þann fróðleik sem til er um þroskasálfræði. Það er gaman ! :)
Nóg um skólann ...
Þessi vika er búin að vera voðavoða skrýtin, ég er búin að vera eitthvað svo túrbó dugleg. Ég fór í ræktina, og sund 3 daga í röð, synti eins og ég kynni ekkert annað.
Það var alveg þvílíkt, enda fékk ég að sofa út í dag(laugardag) og ég svaf sko til 12 takk fyrir! :) Dauðþreytt...
Gaman að segja frá því að ég var að fá útúr Sálfræði verkefninu mínu um Þroska barna. Og ég fékk 9.0 þakka þér kærlega kæri lesandi! Ég var svo glöð að ég hélt að ég myndi bara öskra í tíma. Það var líka bara gaman að gera þetta verkefni, gerði tilraunir með Auðbjörg Erlu og Dagmar litlu frænkum minum, bara gaman :) !
En annars, nú tekur við ritgerð í Íslandsklukkunni góðu, um samband Snæfríðar Íslandssólar og Magnúsar, best að fara að drulla sér í það!
Jábæj...
No comments:
Post a Comment