Sunday, February 22, 2009

Úúúútí eyjum...

Kóngsins Vestmannaeyjar... nei ?
Jæja ég er allavegana þar núna =) búin að vera þar síðan á föstudaginn. Kom með Herjólfi um kvöldið, =) sem betur fer var sjóferðin ekki eins slæm og þegar ég kom hingað um jólin, það var ógeð! hehe
En annars er ég búin að gera mest lítið hjá þeim , búið að vera svona letihelgi , rosa kósí! Í dag fór ég í göngutúr með Hörpu frænku og Emilíu sætu litlu frænku, um bæinn, fórum á róló með Emilíu og löbbuðum svo um. Þetta er ekkert smá kósí bær eitthvað ! Rosa gott veður í dag líka, alveg stillt, þó það hafi ekki verið neitt voðalega gott útsýni, en það er aukaatriði :) . Gæti alveg hugsað mér að búa hérna :)
Þau búa semsagt í tveggja hæða húsi , rosalega nice ! Og ef maður lítur út um baðherbergisgluggann er maður með heimaklett beint fyrir framan sig :) Ekki slæmt..

Annars er búið að vera eitthvað lítið um lærdóm ! Tók smá svona lærdómsdugnað á laugardaginn meðan Emilía svaf, en það er alltog sumt.. Á morgun segir sá lati... eða Lilja bara ..

Ég hef annars ekki mikið að segja þessa stundina :) er að spá í að fara að horfa á einhverja gelgjumynd :D...

Thursday, February 19, 2009

Vökurró-Björk

Já kannski svolítið mikið um texta hérna þessa dagana, ég er í ensku tíma núna að hlusta á þetta lag, og það er svo fallegt í alla staði! Bæði vel flutt af Björk, mjög dramatíst og líka svo fallegur texti. Þetta er svo flott lag!
Það var samt ekki meira í bili :)


Bærinn minn
bærinn minn og þinn
sefur sæll í kyrrð
fellur mjöll
hljótt í húmi á jörð
grasið mitt
grasið mitt og þitt
geymir mold til vors

Hjúfrar lind
leynt við brekkurót
vakir eins og við
lífi trútt
kyrrlátt kalda vermsl
augum djúps
útí himinfyrrð
starir stillt um nótt

Langt í burt
vakir veröld stór
grimmum töfrum tryllt

eirðarlaus
óttast nótt og dag
augu þín
óttalaus og hrein
brosa við mér björt

Vonin mín
blessað brosið þitt
vekur ljóð úr værð
hvílist jörð
hljóð í örmum snæs
liljuhvít
lokar augum blám
litla stúlkan mín

Tuesday, February 17, 2009

Once when I was little - James Morrison

I was the one,
Who would always
Jump in first
Didn't think twice
To look behind
Got such a good feeling,
Just from playing
In the dirt
Once,
When I was little

We could build a rocket,
Fly to the moon
Leave Tuesday morning,
And be back for noon
There wasn't nothing,
Nothing that we couldn't do
Once, when I was little umm
Once, when I was little

Yeah I could dream more then
Yeah I believed more then
That the world
Could only get better
Yeah I was free more then
I could pretend more then
That this life could
Only show me good times
Once, when I was little

There was a time
When I trusted everyone
Yes I did
There was no place
That I would not go oh no
Spend a day on the hillside
Next to the holly mo
Oh once, when I was little
Yea once, when I, I was little


Yeah I could dream more then
Yeah I believe more then
That this world
Could only get better
Yeah I was free more then
I could pretend more then
That this life could
Only show me good times
Once, when I was little

Used to feel so strong
Even when they tell me,
Tell me I was wrong
That I can't live
In a magic world
Cause it's time
For me to grow up
That I got to be
Like the rest of them
When I know
There acting up

I could believe more
Then yes I could
I could pretend more then
That this life could
Only get better
I could believe more
Then yes I could
I could pretend more then

That this world could
Only show me good times
Once, when I was little
When I was little

So here comes the next one,
The next in line
Stay as young you can,
For the longest time
Cause those days flew by
Like a breeze
Just passing through
Once, when I was little

Monday, February 16, 2009

It's the end of the world as we know it.

Mánudagur 16.febrúar 2009.
Ekkert spennandi við það svosem..

Í dag er spænskukennarinn veikur again, í fyrsta tíma, hví erum við ekki látin vita -__-' ég dröslaði mér út úr rúminu, með erfiðum may I add! Labbaði í friggin skólann! Og svo bara pfft var hún veik. Og ég nenni náttúrulega enganvegin að labba aftur heim, því ég er að drepast í kálfunum eftir allt þetta upp-í-móti labb..

Ég fór semsagt á þorrablót um helgina, pakkaði á 10mínútum takk fyrir, ekkert smá snögg. En ég tók líka fulla ferðatösku með mér, ég notaði ekki einu sinni helminginn hehehe. Ég henti bara eiginlega öllu sem ég á , til þess að gleyma örugglega ekki neinu ! Móðir ætlaði ekki að geta hætt að fussa og sveija yfir því hvað ég væri með mikið dót, hún sem væri bara með eina litla tösku fyrir 3. Heh... oh well..
Það var semsagt bara gaman á þorrablótinu =) . Hitti Döllu og Sigrúnu&Jóhönnu ^^ sweet.
Ekki mikið að segja frá svosem , dönsuðum eitthvað, og sátum eitthvað frammi bara að spjalla, voðaleega fínt ^^ .

Ég fór að pæla í einu í dag. Alltaf þegar ég sé spurningar hjá fólki þú veist svona langar þig að eignast börn, og fólk svarar kannski nei, mig langar það ekki. Þá kemur alltaf þessi viðbrögð hjá mér; guð, langar henni/honum ekki að eignast barn! En af hverju ?!? Svo fór ég aðeins að hugsa, það er rosalega sjálfsagt að allir eignist börn þegar þeir eru komnir á ákveðinn aldur. En það á ekki að vera svona sjálfsagt, það er náttúrulega bara asnalegt. Sumir vilja bara einfaldlega ekki eignast börn, og það er bara voðalega fínt. Það á ekkert að vera sjálfsagt í heiminum. Hmm... allavegana ekkert svona. Æff ég veit ekki.



Annars hef ég voðalega lítið að segja þessa dagana, ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við lífið.
Eitt veit ég þó, ég ætla ekki! að falla í spænsku takk!

Týndur fannst

Týndur fannst, en fundinn hvarf,
að fundnum týndur leita þarf.
Týnist þá, en fundinn fer
að finna þann, sem týndur er.

Friday, February 13, 2009

7,9,13!

Það er komið að því. Svona næstum því.
Í dag fer ég í fögru sveitina bak við heiðina.
Og ég ætla að fara á hið árlega þorrablót í barnaskólanum á Borðeyri. Með móður, bróður, móðurafa,móðurömmu. Hlakk Hlakk...
Föstudagurinn 13. Ekki sniðugt að vera á flandrinu út á land, en það hefur svosem ekki stoppað okkur fyrr, og efa ég stórlega að það geri það í þetta skiptið.

Rosalega er þessi vika búin að vera tóm og gagnslaus.
Það sem einkennir þessa viku aðallega er þreyta, pirringur,svengd,meiri pirringur,nokkur bros,appelsínuát,hugsunarhausverkur, tiltekt og gagnslaus ferð í Smáralindina.
Skemmtilegt.

Hér sit ég, í stofu V35 að velta því fyrir mér af hverju sálfræðikennarinn minn haldi á krítinni eins og sígarettu, reyni að hlusta á kennslu um greindarpróf og Stanford Binet, en það eina sem mig langar að gera er að fara heim! Topp nemandi.
Við tókum greindarpróf eftir Howard someone í tímanum(sem er búinn núna btw) kemur í ljós að tónlistargreind á best við mig og náttúrugreind. Það er reyndar alveg rétt. Sýnir þeim sem heldur því fram að ég sé ekki gáfuð að það séu til aðrar gáfur heldur en bara stærðfræði og landafræði, hafðu það!

Ég vaknaði í morgun kl.9, átti að mæta í tíma kl.10, ég ætlaði að skrópa, en ég ákvað að vera rosalega dugleg, dröslaði sjálfri mér á fætur, missti af strætó, labbaði í skítaveðri og nístingskulda og hálku, upp í skóla, allt í brekkum, uppámóti. Þegar ég kom í skólann þá ákvað spænskukennarinn minn hún Elisabet Saguar að vera veik , tíbíst pínu.. Af hverju fáum við ekki sms þegar tímar falla niður í fyrsta tíma, I wish... Þetta er ekki uppáhalds dagurinn minn.

Í gær fór ég til Huldu frænku í smá kjallarakaffi :) . Ég missti af strætó(hvað er með strætó!!), beið í klukkutíma eftir strætó notabene! Hélt að ég myndi deyja á götunni úr kulda. Kom svo loksins strætóinn og veitti mér far, niður á Hlemm og þaðan labbaði ég heim til frænkunar með kósíkjallaraíbúðina.
Það var rosalega kósí að koma í heimsókn , ég fékk te og bestu skúffuköku í heimi, this married life sure is working out for you hehe =) .
Fór svo heim eftir gott spjall við frænkuna sem ég hitti alltof sjaldan.

Mig langar, óvenjulega mikið, að fara til Edinborgar, þessi bær, þetta land! Hallelujah....
Jæja..
Ég hef ekkert meira að segja, ég get alveg babblað eitthvað gagnslaust sem öllum er sama um , en ég kýs að gera það ekki.
Mig langar heim. Amen

Að frelsa heiminn

Að frelsa heiminn er eins og að
standa uppi á stól
í stóru veitingahúsi og kalla út í salinn:
Hér inni er stúlka í alltof þröngum kjól.
Og öllum er ljóst, að þessi maður er
galinn.

Það er sama, þótt þú sért góður
maður og gegn
og gangir í hlé eins og drengur,
saklaus og feiminn.
Þú ræðst samt alltaf á það, sem þér
er um megn,
og þessvegna tekst þér aldrei að
frelsa heiminn.

Steinn Steinarr

Wednesday, February 11, 2009

Einmitt það.

Jæja okei ...
ég ákvað að vera "í takt við tímann" eða eitthvað. Og fá mér nýja bloggsíðu... eigum við að telja allar síðurnar sem ég hef átt. Nei takk, látum það bara vera.. gæti tekið dágóðan tíma!
Skoðaði nú samt gamlar heimasíður, svona upp á gamanið. Harpa frænka var tíður gestur á bloggin mín, þegar ég var í 6-7 bekk. Er nú búin að bæta mig eitthvað í málfari síðan þá, það var allt ; skohh, omgzz, hellúúpps, etta (þetta), sonna(svona), skomm, geggt(geðveikt), skemmtó... jæja Harpa frænkan mín, það er satt sem þú segir, hræðilegt að lesa þessi blogg, fer hjá mér hahahaha, vantar mikið af Þ og Ð .. Það er nóg af þeim ágætu stöfum í þessum bloggum því get ég lofað :)

Í dag var frí í skólanum ! ví! , ég gerði mest lítið, svaf lengi, borðaði furðu lítið! En í nótt tók ég til, ég er ein af þeim furðuverum sem getur ekki tekið til á skikkanlegum tíma, ég þarf alltaf að slugsa að taka til, helst í svona 2 vikur, þangað til að það er svo mikið drasl að það sérst ekki í gólfið, þá tek ég mig saman, set playlistann í gang á Itunes sem heitir "takatil mix" og byrja svo . Það tók mig 2 klukkutíma í nótt að taka til , ef ekki meira.. En núna er orðið allt hreint og fínt, meirað segja tók ég til undir rúmi, það gerist ALDREI! þannig ég var alveg extra dugleg... Ef svo má segja.. Þegar ég var yngri, kannski 10-12 ára, þá reyndi ég alltaf að gera tiltektir sem skemmtilegastar.. kannski of skemmtilegar.. ég klæddi mig alltaf í línuskauta, og svo tók ég sóp, sópaði öllu draslinu saman í eina stóra hrúgu, og skautaði svo hringinn í kringum hrúguna og setti dótið á sinn stað. True story..

Um helgina svo, ætla ég að fara í sveitina mína, Kjörseyri.. við famelían , ásamt ömmu og afa erum að fara á þorrablót á Borðeyrinni góðu. Árlegur viðburður sem mig hlakkar alltaf til að fara í. Furðu fáir sem fara á þorrablótið í fjölskyldunni, það finnst mér vera synd...

Annars er bara voðalega mikið ekkert að frétta af mér , ég er eitthvað voðalega asnaleg þessa dagana, alltaf svo þreytt og ofhugsandi , læt allt pirra mig, og brosa voða sjaldan, ég þoli ekki veturnar! Hlakka alveg hrikalega til sumarsins, þegar ég er ekki ACTUALLY flekkótt af kulda.. Meira ástandið.

Talandi um ástand. Hvert er Ísland eiginlega að fara .. hmm.. Ég er nákvæmlega ekki neitt inni í þessum umræðum og öllu draslinu, enda bara 18 ára krakkakúkur, en ég hef samt minar skoðanir, ekki gagnvart ríkistjórn,forseta eða alþingi, heldur gagnvart fólkinu á götunni. Mér finnst þessi mótmæli aðeins of, sem voru hérna um daginn. Kasta grjóti í lögguna, ég skil það ekki, er ekki lögreglan bara að vinna vinnuna sína ? Hver veit nema þessir þjónar lagana eigi við sín eigin peningavandamál að stríða. Og fyrir það fá þeir grjót og egg í sig. Virðingin! Svo finnst mér til skammar að fólk sé að láta börnin sín mótmæla, þau vita bara ekki baun hvað er í gangi, eins og stelpan sem æpti og öskraði uppi á sviði, svo var tekið viðtal við hana, og hún vissi varla hvað hún átti að segja, svo kom spurningin " gerðir þú ræðuna bara alveg sjálf" -" já nei pabbi hjálpaði mér" Þar hafiði það. Ég tek allavegana ekki þátt í svona vitleysu. Aldrei skal ég gera barninu mínu þetta. Samt finnst mér allt í lagi að mótmæla, það virðist nú vera að virka, en óþarfi að láta það bitna á lögregluni, og börnunum...

Yfir í annað.. Eftir tvær vikur og tvo daga.. ætla ég að fara til útlanda! landið er Vestmannaeyjar! Ég ætla að vera stór stelpa, og fara alveg sjálf með Herjólfi og allt, jii.. Ég er sjóveikari en allt sem hreyfist ! við famelían fórum til vestmannaeyja um jólin, og ég ætlaði að vera rosalega "hörð" og sitja uppi allan tíman, geðveikt töff.. nei nei, mín var hlaupin niður í koju um leið og lyklarnir komust í hendur móður minnar, ég gleypti sjóveikistöflu í flíti, helst 2 en það var ekki leyfilegt, klemmdi saman augunum og bað til guðs að þetta væri búið bráðum! Ég sá bara fyrir mér Titanic íslands... hvernig svo sem það ætti að virka.. ég sofnaði voðalega asnalega, í asnalegri stellingu, og vaknaði þegar ég var viss um að báturinn væri alveg stopp. Þegar ég stóð upp fann ég fyrir verk í andlitinu, ég hafði skorið yfir hálft andlitið á mér með nöglunum í svefni, reyna að grípa í eitthvað í ölduganginum? nú veit ég ekki. Þetta var allavegana, án efa, versta sjóferð sem ég hef farið í. Alveg þess virði til að eyða jólunum með næstumþvísystirminni og fjölsyldunni hennar, en hrikalegt! Hvernig ætli þetta verði núna, ætli ég endi ekki með því að skríða undir borð af hræðslu. Ég er ennþá meiri kjúklingur því að ég VEIT að það eru einhverjir jafnvægishreiflar bilaðir, það hræðir líftóruna úr mér! En , hvað gerir maður ekki til að geta heimsótt næstumþvístórusystir, doctor Elvar og litlu músina með bláu augun ? Maður smyr sig..

Annars er ég hætt að tuða, og ætla að fá mér handabað áður en puttarnir frosna af!