Að blogga? hvað er það ...
Djííí djöfull er maður lélegur , þetta letilíf fer alveg með mann ...
Margt og mikið búið að ske síðan ég dritaði nokkrum stöfum hingað inn.
Ég náði bílprófinu, 1.apríl, enginn trúði mér , andskotansdjöfulsins!
Skemmtilegt ...
Svo var árshátíð í skólanum, svaaaka elegant matur og allt fínerí .. Svo var dansiball, rosa stuð... Ekki mikið að segja frá þar ..
Þá helgi fórum við svo í sumarbústað, ég og nokkrir krakkar úr mk, það var líka óeðlilega gaman ... rooosa stuð ... jájá
Ég er búin að kaupa mér rándýra myndavél, alveg að gera sig í alla staði , ég missi mig í myndatökum, hamingjusamari en allt.
Ég fór í páskafrí, og í páskafríinu fór ég á Kjörseyri, í Fagradal, í bæinn í fermingu, aftur á Kjörseyri, Á þorpa, til Hólmavíkur, og aftur á Kjörseyri ... og svo suður. Já já það var rosalega gaman. Át slatta, "djammaði" eitt kvöld á Hólmavíkinni, drakk mikið(af vatni!!!!!), oft í bíl, spilaði smá, fór í fjárhúsin, fór út , tók myndir, horfði á sjónvarpið, og lærði EKKI NEITT! ....
Jahá...
Nú tekur alvara lífsins við víst, skólinn að byrja aftur, ég er nú ekki alveg að nenna því að fara í skólann, en jæja .. Þetta er alveg að verða búið svosem. Þá fer ég í fögru sveitina mína.
...
Ég náði mér í strák, en ég skilaði honum fljótlega, hann reyndist ekki vera sá sem ég hélt að hann væri ... Það endaði ekki vel.
Eitthvað í reynslubankann segiru? Ojæja..
Ég er á kafi í tónlist þessa dagana, ég er að uppgötva svo mikið af æðislegum lögum að ég hef ekki tíma í neitt annað. Ótrúlegt hvað það er til mikið af yndislegri tónlist í þessum heimi. híhíhí...
-
Hvað segiði? er að koma sumar ... iii já ! það er vorfílíngur í loftinu, mér er svo létt þessa dagana, dimmu drungalegu dagarnir eru að baki, og koma vonandi ekki nærri nærri strax aftur, ég vil ekki sjá þá. Nú er endalaus hamingja framundan, sól og sumaryl, litlu lömbin að koma, sumarkjólar,sólgleraugu og ís! Freknurnar mínar fara að sýna sig aftur , farin að sakna þeirra. Hestarnir koma af fjöllum, skellir á þá hnakka og fer í reiðtúra, já já já , lífið verður yndislegt.
Gamla settið mitt (þaðeraðsegja, mamma og fósturpabbinn) eru að fara í orlof, til danmerkur, frá fimmtudegi til sunnudags,það er náttúrulega alveg hræðilegt að vera með 3 gemsa á heimilinu og nauðsynlegt að komast í burtu til að blása öllu út, hehehe... litla skott er ekki alveg að taka því að þau séu að fara, ekkert allt of ánægð með það, en ætli stóra systirin geti nú ekki verið rosa góð við hana um helgina, svo kemur amman í bæinn, þá verður allt gott.
Já já , eruði ekki annars bara í góðu skapi ? Farin að rækta blómin í garðinum og svona
he he ...
No comments:
Post a Comment