Monday, April 20, 2009

Að frelsa heiminn

Að frelsa heiminn er eins og að
standa uppi á stól
í stóru veitingahúsi og kalla út í salinn:
Hér inni er stúlka í alltof þröngum kjól.
Og öllum er ljóst, að þessi maður
er galinn.


Það er sama, þótt þú sért góður
maður og gegn
og gangir í hlé eins og drengur,
saklaus og feiminn.
Þú ræðst samt alltaf á það, sem þér
er um megn,
og þessvegna tekst þér aldrei
að frelsa heiminn.
Steinn Steinarr


Ég er komin með svo mikið ógeð af þessu pólitíkusakreppusamfylkingarkjaftæði. Þetta er farið að hafa áhrif á skólann, núna eru verkefnin farin að snúast um allt þetta, ef þú ert að gera eyðufyllingar í ensku, þá kemur , the economic situation in Iceland is very bad.. blablablabla... ugh

Annars er bara allt gott að frétta, ég er alveg að klára skólann bara, nokkur verkefnaskil eftir, og svo bara prófin.
Farin að verða samt svolítið stressuð fyrir prófin hlakka til þegar þetta er búið.

Mamma&Ingimar fóru til Danmerkur um helgina , yfir langa helgi, og við krakkarnir vorum bara eftir á Íslandinu. Erla Dagmar var rosa hress, ég fór með hana út að hjóla á laugardeginum, og hún var svo ánægð í gula regnjakkanum sínum :) . Svo komu Brynja og Birta Rún í heimsókn. Birta krútt :) ..
En já já , svo fór ég að sækja gamla settið í gærkvöldi og var rosa fegin að fá þau heim, og þau væntanlega vonandi glöð að koma heim :) ...

Ég er svo þreytt að ég var farin að skrifa eitthvað bull, þannig ætli það sé ekki best að standa upp og teygja sig eða eitthvað.

Flaben ...

No comments: